Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   þri 16. október 2012 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Birkir Bjarnason: Þetta var mjög pirrandi
Voltaren
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta er mjög pirrandi, við áttum meira skilið en þetta, alla vega eitt stig," sagði Birkir Bjarnason, leikmaður Pescara og íslenska landsliðsins í dag.

Ísland tapaði fyrir Sviss með tveimur mörkum gegn engu. Tranquillo Barnetta kom Sviss yfir áður en Mario Gavranovic bætti við.

,,Þeir voru fínir en mér fannst við mjög góðir í alla vega sextíu eða sjötíu mínútur. Þetta datt svolítið niður eftir þetta mark."

,,Mér leið bara mjög vel og mér fannst við spila mjög vel allt liðið. Spiluðum mjög vel saman og vorum að sýna það í dag."

,,Maður var svolítið lágur þarna á köflum, en maður verður stundum að gera það þegar maður mætir góðum liðum. Það er mjög pirrandi að boltinn fór ekki inn, en svona er þetta."

,,Eins og leikurinn þróaðist í dag þá áttum við meira skilið. Þó að það er leiðinlegt að enda þetta með tapi þá eru það fimm mánuðir sem við höfum til að undirbúa okkur,"
sagði Birkir að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner