Paul Ince, fyrrum landsliðsmaður Englands, vill að Serbar verði dæmdir í 10 ára bann frá þáttöku á alþjóðlegum mótum eftir uppákomuna í leik U-21 landsliðs Serbíu og Englands í gær.
Danny Rose, leikmaður Englands, varð þá fyrir miklu kynþáttahatri í lok leiks og fékk rauða spjaldið fyrir viðbrögð sín.
Þá sauð upp úr og urðu talsverð slagsmál milli starfsmanna Serba og leikmanna enska liðsins og var þar bundinn endahnútur á hneykslanlega framkomu Serba í gær.
,,Ef þetta væri ég þá væri Serbía bannað frá næstu fimm mótum. Þetta var ógeðslegt að sjá," sagði Ince, en sonur hans, Tom Ince, var í liði Englands.
Alistair Bruce Ball, blaðamaður BBC, lýsti kvöldinu svona;
,,Strax og leikmenn voru komnir í göngin voru vandamál. Einn þjálfari Serba var með læti og í andlitinu á ensku leikmönnunum," sagði Ball.
,,Hlutum var hent í Jack Butland allan leikinn úr stúkunni. Sæti var kastað að Stuart Pearce og í endann lenti Danny Rose í kynþáttaníð."



