Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands, segist ekki skilja hvernig Svíum tókst að vinna upp fjögurra marka forystu á rétt rúmum hálftíma í viðureign liðanna í undankeppni HM í gær.
Þjóðverjar voru 4-0 yfir eftir mark Mesut Özil á 56. mínútu en Zlatan Ibrahimovic, Mikael Lustig, Johan Elmander og Rasmus Elm skoruðu allir og jöfnuðu á ótrúlegan hátt.
Þjóðverjar voru 4-0 yfir eftir mark Mesut Özil á 56. mínútu en Zlatan Ibrahimovic, Mikael Lustig, Johan Elmander og Rasmus Elm skoruðu allir og jöfnuðu á ótrúlegan hátt.
Þetta eru fyrstu stigin sem Þjóðverjar tapa í undankeppninni og eru flestir þar í landi furðulostnir.
,,Í sannleika sagt þá hef ég engar útskýringar núna tíu mínútum eftir þennan leik," sagði Löw í sjónvarpsviðtali strax eftir leikinn.
,,Fyrstu 60 mínúturnar voru frábærar, við spiluðum mjög, mjög vel. Svo misstum við hraðan úr leiknum okkar og allt fór á versta veg.
,,Það var ekkert skipulag, við áttum í vandræðum með langa bolta og það er erfitt að átta sig á því hvað kom fyrir. Vandinn byrjaði örugglega í hausunum á leikmönnunum því þeir voru 4-0 yfir og bjuggust bara við að sigurinn væri kominn í höfn.
,,Við gerðum svo mikið af mistökum á síðasta hálftímanum að við verðum að skoða vel og vandlega hvað fór úrskeiðis."



