Cesare Prandelli, landsliðsþjálfari Ítalíu, var mjög ánægður með frammistöðu Mario Balotelli gegn Dönum í undankeppni HM í gær og hrósaði honum í hástert í sjónvarpsviðtali eftir leikinn.
Riccardo Montolivo, Daniele De Rossi og Balotelli skoruðu mörk Ítala í leiknum sem lauk með 3-1 sigri en Balotelli lagði einnig eitt markanna upp.
Riccardo Montolivo, Daniele De Rossi og Balotelli skoruðu mörk Ítala í leiknum sem lauk með 3-1 sigri en Balotelli lagði einnig eitt markanna upp.
,,Við byrjuðum illa þar sem þeir settu mikla pressu á okkur á upphafsmínútunum," sagði Prandelli við fréttamenn eftir leikinn.
,,Svo spiluðum við stórkostlegan fótbolta í tuttugu mínútur en fengum svo mark á okkur rétt fyrir hálfleik. Eftir nokkrar sekúndur af síðari hálfleik misstum við svo mann af velli en sýndum mikinn liðsanda, jukum forystuna og lönduðum sigrinum.
,,Mario (Balotelli) verður að spila svona oftar, hann hjálpaði samherjunum mikið í dag og það er augljóst að hann er gríðarlega hæfileikaríkur."




