Kvennalandsliðið lagði af stað til Úkraínu
Íslenska kvennalandsliðið hélt utan snemma í morgun áleiðis til Sevastopol í Úkraínu þar sem leikið verður gegn heimastúlkum í umspilsleik fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð á laugardaginn en frá þessu er gerint á vef KSÍ í dag.
Leikið verður heima og heiman og verður seinni leikurinn hér á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október kl. 18:30.
Ferðalagið er nokkuð langt hjá stelpurnum en héðan er flogið til Helsinki þar sem leikmennirnir sem leika í Noregi og Svíþjóð koma til móts við hópinn. Þaðan verður flogið til Kænugarðs og síðan er flug á Simferopol og lýkur ferðalaginu með um 100 kílómetra rútuferð til Sevastopol.
Leikurinn við Úkraínu hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma í Sevastopol en liðið heldur strax heim á leið á laugardeginum og hefst þá undirbúningur fyrir heimaleikinn á fimmtudaginn.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar