Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 10:00
Magnús Már Einarsson
Joe Tillen farinn frá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Joe Tillen hefur yfirgefið herbúðir Vals en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.

Joe kom til Vals frá Selfyssingum í júlí en náði einungis að leika tvo leiki með liðinu þar sem meiðsli settu strik í reikninginn.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur leikið á Íslandi undanfarin ár. Hann kom fyrst til Fram árið 2008 en hann gekk síðan til liðs við Selfyssinga árið 2011.

Þónokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Vals undanfarna daga en auk Joe hafa Ásgeir Þór Ingólfsson, Atli Heimisson, Halldór Kristinn Halldórsson og Sindri Snær Jensson yfirgefið félagið.

Edvard Börkur Óttharsson, Ingólfur Sigurðsson og Sigurður Egill Lárusson hafa aftur á móti gengið í raðir Vals en Magnús Gylfason tók við þjálfun liðsins í síðustu viku.
Slapp
banner
banner