Þjálfari Serba neitar að biðjast afsökunar
Aleksandar Jankovic, þjálfaru U-21 landsliðs Serbíu, neitar að biðjast afsökunar á framferði sinna manna eftir leikinn gegn Englandi í gær.
Englendingar tryggðu sér þar sæti á Evrópumótinu sem fram fer í Ísrael næsta sumar, en eftir leikinn varð allt vitlaust á vellinum og varð Danny Rose, leikmaður Englands, meðal annars fyrir miklu kynþáttahatri og var öllu lauslegu hent inn á völlinn.
Rose brást reiður við og fékk rauða spjaldið fyrir framferði sitt. Þá sauð einnig upp á milli starfsmanna liðana.
,,Ég sé ekki ástæðu til að biðjast afsökunar á því sem gerðist," sagði Jankovic í dag.
,,Maður þarf að vita tvær hliðar á sögunni þegar slagsmál verða, ekki bara eina. Ég sá ekki almennilega hvað gerðist, en ég endurtek að það þarf báðar hliðar málsins."
Hann sá sér þó ástæðu til að óska Englendingum til hamingju með sæti sitt á Evrópumótinu.
,,England á skilið að vera í úrslitunum svo ég óska þeim til hamingju með það."

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00