Lionel Messi, leikmaður Barcelona, lenti í afar sérstöku atviki í hálfleik í leik Argentínu og Síle í nótt.
Annar aðstoðardómarinn í leiknum bað þá Messi um að sitja fyrir á mynd með sér í hálfleik eins og sjá má með því að smella á tengilinn hér að neðan.
Annar aðstoðardómarinn í leiknum bað þá Messi um að sitja fyrir á mynd með sér í hálfleik eins og sjá má með því að smella á tengilinn hér að neðan.
Messi samþykkti beiðnina og aðstoðardómarinn fór ánægður til búningsherbergja eftir að hafa fengið mynd af sér með Messi.
Argentína sigraði leikinn í gær 2-1 en Gonzalo Higuain skoraði bæði mörk liðsins í fyrri hálfleik.
Smelltu hér til að sjá myndband af atvikinu

