Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 11:16
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Boltinn á X977 
Heimir Guðjóns: Hefðum viljað halda Gulla
Róbert Örn fær tækifærið sem aðalmarkmaður
Gunnleifur með Íslandsmeistarabikarinn.
Gunnleifur með Íslandsmeistarabikarinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Róbert Örn Óskarsson.
Róbert Örn Óskarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segist alls ekki hafa átt von á því að Gunnleifur Gunnleifsson myndi yfirgefa félagið. Gunnleifur hafnaði boði um nýjan samning hjá félaginu og er á leið í raðir Breiðabliks.

„Auðvitað hefðum við viljað hafa Gunnleif áfram, það er ekki spurning. Við vorum tilbúnir að bjóða honum góðan eins árs samning en hann hafði ekki áhuga á því," sagði Heimir í viðtali við Boltann á X-inu FM 97,7.

„Það hefur verið hefðin hjá FH, þegar menn eru orðnir þetta gamlir eru þeir ekki að fá langa samninga. Þeir fá bara eitt ár og ef þeir standa sig fá þeir samning aftur, þetta eru ekki flókin fræði."

„Ef menn treysta sér ekki í þetta og halda að það sé eitthvað betra hinumegin þá fara menn bara í það."

„Þetta er það sem við höfum verið að gera og það var einhugur innan FH að breyta því ekki," sagði Heimir en leikmenn eins og Bjarki Gunnlaugsson, Freyr Bjarnason og Tommy Nielsen hafa í gegnum tíðina fengið að kynnast þessari hefð hjá Hafnarfjarðarliðinu.

Erum ekki að fara á taugum
Róbert Örn Óskarsson sem var varamarkmaður FH í sumar mun fá tækifæri sem aðalmarkmaður. Róbert er FH-ingur fæddur 1987 en hann lék með ÍR í fyrra og BÍ/Bolungarvík árið þar á undan.

„Við erum ekki að fara á taugum yfir þessum fréttum. Við erum með gríðarlega góðan markvörð í Robba. Hann mun fá sitt tækifæri sem fyrsti markvörður FH og það er bara hans að nota það."

„Að sjálfsögðu munum við samt líta í kringum okkur fyrst þetta fór svona," sagði Heimir.

Gunnleifur hefur sjálfur ekkert viljað tjá sig við fjölmiðla og hann neitaði viðtölum eftir landsleik Íslands og Sviss í gær.

Gunnleifur hefur verið lykilmaður í FH-liðinu síðustu ár og var fyrirliði í sumar þegar FH-ingar hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum.
Slapp
banner
banner
banner