Jóhann Þórhalls: Bíð eftir tækifæri til að komast norður
Jóhann Þórhallsson hefur rætt lauslega við uppeldisfélag sitt Þór en framtíð hans er í óvissu þessa dagana.
Jóhann hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir Fylkis en hann hefur rætt við Þór sem og fleiri félög.
,,Ég hef aðeins rætt við Þór. Ég hef ekki hitt stjórnina en ég hef aðeins heyrt í þeim. Þetta er allt í lausu lofti í augnablikinu," sagði Jóhann við Fótbolta.net í dag.
Þessi 32 ára gamli framherji mun flytja á Akureyri og væntanlega leika með Þór ef hann fær vinnu norðan heiða.
,,Fjölskyldan mín er flutt norður en ég flyt ekki þangað fyrr en ég fæ vinnu þar og þetta veltur á því. Ég bíð eftir tækifæri til að komast norður."
Jóhann hefur leikið með Fylki frá því árið 2008 en í sumar skoraði hann fjögur mörk í fjórtán leikjum í Pepsi-deildinni.
Hann hefur einnig leikið með KR, Grindavík og KA á ferli sínum hér á landi.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
09:00