Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 13:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Tottenham leyfir Blackburn ekki að ræða við Sherwood
Tottenham hefur hafnað beiðni Blackburn um að fá að ræða við aðstoðarstjóra félagsins Tim Sherwood.

Blackburn er í leit að eftirmanni Steve Kean og félagið vill fá Sherwood til að fylla hans skarð en Tottenham vill ekki sleppa honum.

Sherwood, sem er 43 ára, lék í sjö ár með Blackburn á sínum tíma og var fyrirliði þegar liðið varð enskur meistari árið 1995.

Sherwood hefur verið í þjálfaraliði Tottenham síðan í október árið 2008 en hann hefur ekki verið áður knattspyrnustjóri á ferlinum.
Slapp
banner
banner
banner