Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 13:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Enska landsliðinu skammtaður tími í tölvuleikjum
Enska knattspyrnusambandið mun frá og með næsta mánuði vera með hertar reglur hjá leikmönnum enska landsliðsins.

Í reglunum kemur meðal annars fram að leikmenn mega ekki setja færslur á Twitter sólarhring fyrir leik.

Þá gætu leikmenn fengið refsingu ef þeir setja færslur á Twitter um andstæðingana, þjálfun enska landsliðsins eða um ákveðna einstaklinga.

Margar fleiri reglur eru í þessari nýju reglubók landsliðsins en þar er minnst sérstaklega á ábyrgð fyrirliða.

Einnig verða reglur um það hversu miklum tíma leikmenn mega eyða í tölvuleikjum í ferðum með landsliðinu.
Slapp
banner
banner