Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 12:11
Elvar Geir Magnússon
Leikið með þakið yfir í Póllandi í dag
Leikur Póllands og Englands í undankeppni HM fer fram í dag klukkan 15 að íslenskum tíma. Leikurinn átti að vera í gær en var frestað vegna gríðarlegrar rigningar.

Þjóðarleikvangurinn í Varsjá er með þaki en ekki tókst að setja þakið yfir í gær þar sem það var of þungt vegna bleytu.

Þeir stuðningsmenn Englands sem áttu miða á leikinn en geta ekki verið viðstaddir hann í dag munu fá endurgreitt. Enska knattspyrnusambandið býst við að um 60% af þeim áhorfendum sem ætluðu að sjá leikinn í gær verði á vellinum í dag.

Þakið verður yfir vellinum meðan leikurinn verður á eftir þrátt fyrir að sólin skíni í Varsjá.

Vallarstarfsmenn hafa unnið baki brotnu svo völlurinn verði eins leikfær og hægt er þegar flautað verður til leiks í dag.
Slapp
banner
banner
banner