Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 12:22
Elvar Geir Magnússon
Missir Reina af næsta leik Liverpool?
Markvörðurinn Pepe Reina er tæpur fyrir næsta leik Liverpool sem er heimaleikur gegn Reading á laugardag.

Reina meiddist á læri þegar hann var að hita upp í hálfleik í leik Spánar gegn Frakklandi í París í gær. Leikurinn endaði með jafntefli.

Reina var ónotaður varamaður í leiknum. Hann býst ekki við því að meiðslin séu alvarleg en verður skoðaður af læknaliði Liverpool í dag.

Brad Jones mun verja mark Liverpool gegn Reading ef Reina verður ekki klár í slaginn.
Slapp
banner
banner