Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 15:05
Magnús Már Einarsson
Hjörtur Hjartar ætlar að spila áfram næsta sumar
Hjörtur Júlíus Hjartarson.
Hjörtur Júlíus Hjartarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn reyndi Hjörtur Júlíus Hjartarson ætlar að spila fótbolta áfram næsta sumar. Hjörtur, sem verður 38 ára í lok mánaðarins, gekk í raðir Víkings R. fyrir ári síðan en hann skoraði níu mörk með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

,,Ég ætla að spila fótbolta áfram á næsta ári hvort sem það verður í Víkingi eða annars staðar," sagði Hjörtur við Fótbolta.net í dag.

,,Ég ætla að byrja á að setjast niður með Víkingum á næstu dögum og heyra hvað þeir ætla að gera í sambandi við liðið. Það eru sóknarfæri í Víkingi en það þarf kannski að styrkja liðið um 2-3 leikmenn til að komast upp."

,,Ég held að þð sé nægur efniviður þarna til að gera atlögu að úrvalsdeildarsæti og það væri gaman að taka þátt í því. Mér fannst ég ekki alveg ná að skila mínu til Víkings í sumar og langar mikið til þess að gera betur næsta sumar."


Hjörtur er einn markahæsti leikmaður í íslenskri deildarkeppni frá upphafi en hann hefur leikið með Skallagrími, Völsungi, ÍA, Selfossi og Þrótti á ferli sínum.
Slapp
banner
banner
banner