Segja enga kynþáttafordóma hafa átt sér stað
Serbneska knattspyrnusambandið hafnar því að leikmenn U-21 landsliðs Englands hafi lent í kynþáttafordómum í leik Serba og Englendinga í Serbíu í gær.
Danny Rose, leikmaður enska liðsins, fékk rauða spjaldið eftir lokaflaut og sagðist hann þar hafa verið að svara miklu kynþáttahatri serbneskra stuðningsmanna sem hafi verið viðgangandi í gegnum allan leikinn.
Hann, ásamt öðrum, hefur kallað á að Serbar verði dæmdir í bann fyrir atvikið, en stuðningsmenn köstuðu einnig lausum hlutum í ensku leikmennina.
Í yfirlýsingu frá serbneska knattspyrnusambandinu í morgun hafna þeir því að kynþáttafordómar hafi átt sér stað í gærkvöldi og segja að Rose hafi hagað sér óviðeigandi og hafi sjálfur skapað sín vandræði.
,,Knattspyrnusamband Serbíu hafnar algjörlega þeim ásökunum um að fórdómar vegna kynþáttar hafi átt sér stað fyrir og á meðan leik stóð á vellinum í Krusevac," stendur meðal annars í yfirlýsingu sambandsins.
,,Að tengja saman þessa tvo hluti - slagsmál á milli meðlima liðsins og kynþáttafordóma - á sér enga stoð í raunveruleiknum og við teljum þetta hreinar aðdráttanir."
,,Því miður, á fjórðu mínútu uppbótartíma var sigurmark gestana skorað og sáust þá ljótir hlutir á vellinum. Á meðan flestir ensku leikmennirnir fögnuðu sínu marki hagaði Danny Rose sér á óviðeigandi hátt, óíþróttamannslega og illa fyrir framan stuðningsmennina og fyrir það var honum sýnt rauða spjaldið."
Áhugaverð ummæli í ljósi þess að Stuart Pearce, stjóri enska liðsins, sagði eftir leik að enska knattspyrnusambandið hefði tilkynnt fjölmörg atvik kynþáttaníðs strax eftir leik til UEFA.
Þá hefur David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fordæmt atvik gærkvöldsins og kallað á þunga refsingu fyrir Serba.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar