Steve Parish, stjórnarformaður Crystal Palace, segir að félagið muni ekki lýta á tilboð sem berast í vængmanninn Wilfried Zaha undir 20 milljónum punda.
Arsenal, Liverpool, Manchester City og Tottenham hafa öll verið orðuð við þennann 19 ára gamla Englending sem hefur slegið í gegn með Crystal Palace undanfarin misseri.
Palace er þó staðráðið í að halda Zaha og er ljóst að hann mun ekki fara ódýrt frá félaginu.
,,Hann er með óraunverulega hæfileika. Ég sagði í byrjun tímabils að það að halda Wilfried væri eins og að eyða miklum pening í nýja leikmenn," sagði Parish.
,,Önnur lið geta gert það sem þau vilja, en það mun þurfa 20 milljón punda áður en við verðum áhugasamir. Hann er með þetta allt, það er að segja ef hann heldur sér á jörðinni og heldur áfram að vinna hart í sínum leik - þá mun þetta allt koma."




