Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Marinó: Kantarnir eru vandamál
Guðmundur Marinó Ingvarsson.
Guðmundur Marinó Ingvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net fékk vel valda aðila til að skoða landsleik Íslands gegn Sviss í gær og nefna þrjá jákvæða og þrjá neikvæða punkta varðandi leikinn.



Guðmundur Marinó Ingvarsson var að störfum á leiknum í gær fyrir Fréttablaðið og Vísi. Hér sjáum við hans álit en fleiri álitsgjafar munu stíga á svið í kvöld.

Jákvætt:

- Framfarir í leik liðsins
Það er vissulega þreytt að spila vel og tapa en liðið hélt bolta vel og á því má byggja.

- Hungrið í leikmönnum
Allir voru þeir svekktir að vera bara með sex stig í fjórum leikjum, einhvern tíman hefðu menn verið sáttir með það.

- Emil Hallfreðsson á miðri miðjunni
Það hafa margir kallað eftir því að hann fái tækifæri þarna og hann svaraði kallinu glæsilega.

Neikvætt:

- Kantarnir eru vandamál
Kemur allt of lítið út úr þeim sóknarlega. Rúrík er týndur og eins frábær og Birkir Bjarnason er þá skapar hann ekki usla á vængnum sjálfum. Verst að það virðist fátt um fína drætti þegar kemur að valkostum í stað þeirra.

- Gamla einbeitingarleysið
Varð liðinu að falli. Liðið spilar vel en svo missa menn einbeitingu í eitt andartak og er refsað. Þetta var ekki eins áberandi og í síðustu tveimur undankeppnum en vottaði samt fyrir þessu.

- Agaleysi
Menn voru að næla sér í leikbann með óþarfa gulum spjöldum sem leikmenn einir bera sök á. Þrír lykilmenn í banni í næsta leik getur kostað.



Fleiri álitsgjafar:
Jóhann Kristinn Gunnarsson
Eysteinn Húni Hauksson
Einar Örn Jónsson
Slapp
banner