Ítalskur dómstóll hefur gert dómurum og öðrum fyrrum mönnum tengdum fótboltanum, sem voru viðloðnir skandalinn mikla í ítalska knattspyrnuheiminum árið 2006, að greiða sem samsvarar yfir 600 milljónum íslenskra króna í skaðabætur.
Hæstu sektina fékk Paolo Bergamo, sem sá um að velja dómara á leiki þegar og þarf hann að greiða eina milljón evra.
Þá þarf dómarinn fyrrverandi Pierluigi Pairetto að reiða fram 800.000 evrum í refsingu.
Einnig var Innocenzo Mazzini, fyrrum varaforseti ítalska knattspyrnusambandsins gert að 700.000 evrur vegna málsins.
Í allt voru 11 aðrir fyrrum dómarar dæmdir í málinu og nemur heildarupphæð refsinga þeirra fjórum milljónum evra.
Skandallinn, var nefndur Calciopoli á Ítalíu, olli meðal annars því að þáverandi Ítalíumeistarar Juventus voru dæmdir niður um deild og sviptir titlum undangengna tímabila. Þá voru stig dregin af nokkrum liðum til viðbótar.



