Modric vill fá félagsskap Bale hjá Real Madrid
Luka Modric vill að fyrrum liðsfélagi sinn Gareth Bale gangi einnig í raðir Real Madrid. Davor Suker, fyrrum sóknarmaður Real, hefur talað um að það yrði besta skrefið fyrir Bale að fara til spænsku meistarana.
„Ég er sammála því að hann ætti að leika fyrir Real Madrid og ég vona að hann komi," segir Modric.
Bale hefur orðið ein stærsta stjarna ensku úrvalsdeildarinnar síðan hann kom til Tottenham frá Southampton 2007. Real Madrid er eitt af þeim félögum sem orðuð hafa verið við Bale.
„Það væri frábært að fá hann til liðsns, hann gæti vel spilað fyrir Real Madrid."
Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham, lét það út úr sér að Bale væri í sama flokki og Cirstiano Ronaldo og Lionel Messi í sínum huga.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar