Róbert Örn Óskarsson er orðinn aðalmarkvörður FH í kjölfar þess að Gunnleifur Gunnleifsson hefur yfirgefið félagið. Róbert segir við Fótbolta.net að þetta sé eitthvað sem hann hefur stefnt að lengi.
„Þetta er líka alveg samkvæmt því sem ég ætlaði mér þegar ég skrifaði undir tveggja ára samning við FH í fyrra. Það var aldrei í plönunum hjá mér að sitja bara á bekknum í tvö ár," segir Róbert.
„Þegar ég heyrði að Gunnleifur væri á förum þá bjóst ég við því að fá tækifærið. Ég hef fulla trú á mínum hæfileikum og ég veit að þeir gera það líka. Það kom allavega ekkert annað upp í hugann á mér en að ég yrði fyrsti maður."
Hrikalega skemmtilegt samband
Róbert er 25 ára og var varamarkvörður Gunnleifs hjá FH í sumar. Hann hefur einnig reynslu frá BÍ/Bolungarvík auk þess sem hann lék með ÍR í 1. deildinni í fyrra og var besti maður liðsins.
„Þessi blessaði ferill minn hefur ekki verið alveg eftir bókinni en nú ætla ég að geta eitthvað af alvöru. Maður er ekki talinn gamall af markverði að vera. Ég var einnig varamarkvörður FH fyrir nokkrum árum og nú er gaman að klára dæmið og verða aðalmarkvörður."
Hann segist hafa lært mikið af Gunnleifi.
„Við áttum hrikalega skemmtilegt samband. Við höfum báðir mikinn áhuga á þessu og finnst gaman að finna nýjar æfingar. Það var kannski ástæða þess að ég var ekkert að rotna á bekknum. Mér fannst þetta vera fínt," segir Róbert.
Tónlistarmaðurinn og FH-ingurinn Friðrik Dór grínaðist með það á Twitter að leyfa ætti Róberti að spila ber að ofan í markinu hjá FH næsta sumar.
„Ég veit það allavega að ég mun spila í medium eða small næsta tímabili. Það verður enginn ruslapoki," segir Róbert Örn Óskarsson kíminn.



