Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 17. október 2012 16:00
Magnús Már Einarsson
Twitter dagsins - Má markmaður spila ber að ofan?
Daníel Rúnarsson ljósmyndari birti þessa mynd á Twitter í dag.  Mörg andlit Lars Lagerback.
Daníel Rúnarsson ljósmyndari birti þessa mynd á Twitter í dag. Mörg andlit Lars Lagerback.
Mynd: Twitter
Lucas Leiva hress með fjölskyldu sinni.
Lucas Leiva hress með fjölskyldu sinni.
Mynd: Twitter
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter síðasta sólarhringinn. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.

Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet



Henry Birgir ‏Gunnarsson íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og Vísi:
Skrítin þessi Wenger-formúla hjá FH með eldri leikmenn. Hefði haldið að væri skynsamlegt að meta hvert tilfelli fyrir sig. #eðavarmoneyrules

Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður:
Má markmaður spila ber að ofan? Ef ekki, þarf að leyfa það strax. Sóun að fela musterið sem líkami Rolo er. BodyPaint kemur líka til greina

Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport:
Næstu leikir Chelsea: Laugard. Spurs (úti) Þriðjud. Donetsk (úti) Sunnud. Man U (heima) Miðvikud. Man U (heima/bikar) Alvöru prógram!

Sindri Snær Jensson félagslaus:
Góður húmor hjá @Fjalli5000 eða hvað? pic.twitter.com/q0UsdLfR

Kristinn Þór Björnsson leikmaður Þórs:
KSÍ á að henda nokkrum milljónum í stækkun á Kaplakrika og gera hann að heimavelli landsliðsins #dauttídalnum #hlaupabrautir

Alfreð Finnbogason ‏landsliðsmaður:
Svekkjandi!!

Arnar Már Guðjónsson leikmaður ÍA:
Vantaði svo sáralítið uppá hjá strákunum áðan. Skemmtilegur leikur á að horfa á annars virkilega leiðnlegum leikvangi.

Daníel Rúnarsson ljósmyndari:
Raðfullnæging hjá Málfarsráðunaut RÚV í kvöld. Fyrst sænskaði Dolli Lallann og þýskaði yfir sig hjá Hitzfeld #InternationalDollMachine

Magnús Sigurbjörnsson veðmálasérfræðingur:
Veðbankar buðu uppá 1000 á jafntefli þegar Þjóðverjar voru 4-0 yfir. Þvílíkt afrek Sweden! #fotbolti

Gudbjörg Gunnarsdóttir markvörður Djurgarden:
Ekki nema 17 blaðsíður í aftonbladet um 4-4 jafnteflið í gær hjá Svíum! #undraverk #fotbolti #bestiLeikurEver

Rio Ferdinand ‏leikmaður Manchester United:
Eina leiðin til að stöðva kynþáttafordóma og ofbeldi á leikvöngum er að dæma lönd/þjálfara í LÖNG bönn....sektir gera ekkert...
Slapp
banner
banner
banner