Jákvætt og neikvætt við landsleikinn
Fótbolti.net fékk vel valda aðila til að skoða landsleik Íslands gegn Sviss í gær og nefna þrjá jákvæða og þrjá neikvæða punkta varðandi leikinn.
Næstur á svið er Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis í Breiðholti og fyrrum aðstoðarþjálfari Vals.
Jákvætt:
- Góð færi, góðar sóknir
Íslenska liðið skapaði sér mjög góð færi, vel útfærðar sóknir og gæði í uppbyggingunni á nokkrum sóknum sem enduðu með góðum tækifærum til þess að skora mörk
- Vinnuframlag leikmanna
Hugarfar leikmanna og vinnuframlag til fyrirmyndar. Ljóst að liðið hefur að geyma góða liðsheild. Menn virkilega tilbúnir að fórna sér fyrir málstaðinn og gefa allt í leikinn.
- Leikskipulag og trú á verkefnið
Leikurinn var vel upplagður af þjálfurum liðsins. Liðið var skipulagt og agað og svo virtist vera sem allir væru með sitt hlutverk á hreinu, mögulega full passívir í fyrri hálfleik en það var þó til þess að Sviss fékk ekki færi í fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn byggðist að mestu á skyndisóknum sem voru margar hverjar vel út færðar.
Neikvætt:
- Nýting á færum
Liðið er að skapa sér góð færi og Ísland fær ekki mikið fleiri færi í leik gegn eins sterku liði og Sviss er. Ef við ætlum okkur stig úr þessum leikjum verðum við að skora úr færunum okkar.
- Vængspil
Við verðum að fá meira út úr vængspilinu okkar en við fengum í gær, fleiri fyrirgjafir sem skila sér inn í teiginn og vinna oftar leikstöðuna "einn gegn einum" þegar við nálgumst síðasta vallarþriðjung.
- Leikurinn tapaðist
Það allra neikvæðasta er að leikurinn tapaðist, ég upplifði leikinn þannig að það var ekki ástæða til þess að fara ekki með neitt út úr honum, síður en svo. Klaufaleg mörk sem við fengum á okkur eftir annars vel út færðan varnarleik nánast allan leikinn og léleg nýting á fínum færum urðu til þess að við fegnum ekkert út úr leik sem var annars heilt yfir góður leikur af hálfu Íslenska liðsins.
Fleiri álitsgjafar:
Guðmundur Marinó Ingvarsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson
Eysteinn Húni Hauksson
Einar Örn Jónsson





