Jón Gísli í viðræðum við félög í Pepsi-deildinni
Jón Gísli Ström er að öllum líkindum á förum frá ÍR en hann stefnir á að leika í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Jón Gísli hefur rætt við nokkur félög úr Pepsi-deildinni en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
,,Ég er líka búinn að fá símtal frá liðum í fyrstu deild en ég er að pæla í að taka skrefið upp í Pepsi-deildina," sagði Jón Gísli við Fótbolta.net í dag.
Nokkur félög sýndu Jóni Gísla einnig áhuga fyrir ári síðan en hann ákvað þá að halda tryggð við uppeldisfélag sitt ÍR.
Þessi 19 ára gamli framherji og kantmaður skoraði tvö mörk í átján leikjum í fyrstu deildinni í sumar.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:45