Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 19:30
Magnús Már Einarsson
Stefán Gíslason gæti leikið á Íslandi næsta sumar
Stefán Gíslason.
Stefán Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Stefán Gíslason, miðjumaður Leuven í Belgíu, gæti mögulega verið á heimleið næsta vor. Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið samfleytt í atvinnumennsku frá því árið 2001 fyrir utan árin 2003 og 2004 þegar hann lék með Keflavík.

,,Það er ekkert ákveðið en fjölskyldan er að öllum líkindum á leið heim næsta vor," sagði Stefán við Fótbolta.net í dag.

,,Ég skoða mín mál, það gæti endað með því að ég komi heim en það er ekkert ákveðið," bætti Stefán við en hann hefur heyrt af áhuga frá íslenskum félögum.

,,Það eru einhverjir sem eru aðeins að fylgjast með en ég er ekki byrjaður að pæla neitt í því."

Stefán gekk í raðir Leuven í sumar en liðið hefur byrjað tímabilið vel en liðið er í sjöunda sæti í belgísku úrvalsdeildinni.

Á atvinnumannaferli sínum hefur Stefán leikið með Strømsgodset, Lyn og Lilleström í Noregi, Grazer í Austurríki og Bröndby í Danmörku.
Slapp
banner
banner