Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 16:45
Elvar Geir Magnússon
Undankeppni HM: Mark Rooney dugði ekki til sigurs
Pólland 1 - 1 England
0-1 Wayne Rooney ('31)
1-1 Kamil Glik ('70)

Jafntefli varð niðurstaðan í leik Póllands og Englands í undankeppni HM sem fram fór í dag. Leikurinn átti upphaflega að vera í gær en var frestað vegna votviðris.

England komst yfir eftir hálftíma leik rúman þegar Steven Gerrard vann hornspyrnu. Gerrard tók spyrnuna sjálfur og Wayne Rooney skoraði með öxlinni.

Rooney fékk svo dauðafæri en skaut yfir rétt áður en Kamil Glik jafnaði í 1-1. Hann skoraði með skalla eftir horn en tilburðir Joe Hart í markinu voru alls ekki sannfærandi.

Englendingar eru á toppi H-riðilsins með átta stig eftir fjóra leiki, Svartfjallaland er með sjö stig og hefur leikið þrjá. Pólland kemur svo í þriðja sæti með fimm stig eftir þrjá leiki.

Þess má geta að enska knattspyrnusambandið í samvinnu við leikmenn liðsins ætla að endurgreiða miðaverðið fyrir þá áhorfendur sem ákváðu að framlengja dvöl sinni í Póllandi til að ná leiknum þrátt fyrir frestun. Með þessu á að þakka fyrir stuðninginn.
Slapp
banner
banner