Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 17:28
Elvar Geir Magnússon
Joe Hart: Mistök mín kostuðu okkur sigur
Joe Hart, markvörður enska landsliðsins, tekur á sig sökina á jöfnunarmarki Póllands í dag. Pólland jafnaði í 1-1 eftir hornspyrnu en Hart fór í skógarhlaup.

„Ég fór út en náði ekki til boltans. Þetta er mín sök og þau voru okkur dýr," sagði Hart auðmjúkur við fjölmiðla eftir leik.

„Þetta kostaði okkur þrjú stig. Völlurinn í dag var ekki góður en það hafði áhrif á bæði lið. Við verðum að trúa því að þetta hafi verið gott stig."

Roy Hodgson landsliðsþjálfari Englands taldi sína menn vera nær sigri. Hann var spurður að því hvers vegna Wayne Rooney var tekinn af velli þegar 17 mínútur voru eftir af leiknum.

„Þrátt fyrir að hann hafi skorað fannst mér hann ekki eiga góðan dag. Hann virkaði þreyttur," sagði Hodgson.
Slapp
banner