Trapattoni líklega áfram þjálfari írska landsliðsins
Giovanni Trapattoni, þjálfari írska landsliðsins, verður að öllum líkindum áfram þjálfari liðsins, en staða hans hefur verið ansi óljós eftir úrslitin gegn Þjóðverjum í undankeppninni nú fyrir helgi.
Írland tapaði fyrir Þýskalandi með sex mörkum gegn einu, en Trapattoni tókst þó að snúa genginu við með 4-1 sigri á Færeyjum.
Írska knattspyrnusambandið fundaði og ræddi þar stöðu Trapattoni og virðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann verði áfram þjálfari liðsins og hefur yfirlýsing sambandsins gefið í skyn að hann verði það áfram.
John Delaney, framkvæmdarstjóri knattspyrnusambandsins, staðfesti það að Trapattoni myndi í það minnsta klára undankeppnina fyrir HM og að svo yrði framtíðin skoðuð en hann fær stuðning sambandsins og leikmanna liðsins.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
11:12