Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður íslenska landsliðsins, hefur ákveðið að senda frá sér yfirlýsingu vegna félagaskipta hans.
Gunnleifur varð Íslandsmeistari með FH á dögunum, en hann var fyrirliði félagsins. Það er þó orðið ljóst að þetta er hans síðasta ár með félaginu og er hann nú á leið í Kópavog þar sem hann mun leika með Breiðablik.
Hann komst að samkomulagi við FH um að hann yrði ekki áfram hjá félaginu og hefur hann því ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum. Hér að neðan má sjá yfirlýsingu hans sem birtist á samskiptavef Facebook.
,,Ég er þakklátur fyrir þann heiður að hafa fengið að spila með FH í þessi 3. ár. Ég hef eignast marga góða vini bæði leikmenn og fleiri sem komu að liðinu á þessum tíma," sagði Gunnleifur.
,,Í FH er mikið af frábæru og metnaðarfullu fólki sem gerir þetta félag svo stórkostlegt. Ég vann titla með liðinu á þessum tíma, spilaði með frábærum leikmönnum, spilaði undir stjórn frábæra þjálfara, átti samskipti við frábæra stjórn og mér varð sýndur sà heiður að vera fyrirliði þessa frábæra liðs."
,,FH mun alltaf eiga sérstakann stað í hjörtum okkar fjölskyldur og við óskum þeim svo sannarlega velfarnaðar í komandi framtíð. Takk FH ingar fyrir frábærar stundir. Ný áskorun tekur við hjá okkur," sagði hann að lokum á Facebook.


