Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 22:45
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard: Þetta hefur skaðað baráttuna gegn rasisma
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og enska landsliðsins, hefur ákveðið að tjá sig opinberlega um atvikið sem átti sér stað í leik U21 árs liðs Englands og Serbíu í gær.

Danny Rose, leikmaður Tottenham Hotspur og U21 árs landsliðsins, sakaði þá Serba um að hafa verið með kynþáttaníð í garð hans, en hann segir stuðningsmenn þjóðarinnar hafa verið boðið upp á apahlóð og aðrar kúnstir.

Serbar harðneita fyrir þetta, en knattspyrnusamband UEFA hefur kært bæði enska knattspyrnusambandið og það serbneska fyrir atvikið, þar sem allt var á suðupunkti þegar leiknum lauk.

Rose var rekinn af velli fyrir að sýna tilfinningar sínar er England vann leikinn og tryggði sér þar með á Evrópumótið, en við það sturluðust leikmenn Serbíu og urðu því mikil læti vegna þess.

,,Það versta við þetta og það sem veldur mestum vonbrigðum er það að við erum komin aftur á byrjunarreit. Það leit út fyrir að við værum að ná einhverjum framförum í að eyða rasisma úr fótboltanum," sagði Gerrard.

,,Þetta eru mikil vonbrigði, en það er fólkið sem er mér ofar sem þarf að taka þessi mál í sínar hendur. Stjórnarmennirnir þurfa að taka þetta föstum tökum, því það er eina lausnin, það getur enginn annar gert neitt."

,,Þetta er fólkið sem stjórnar þessu, sem geta gefið massívar sektir og bannað fólk, svo af hverju að bíða? Gerið þetta núna!,"
sagði Gerrard að lokum.
Slapp
banner
banner