Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   mið 31. október 2012 17:00
Magnús Már Einarsson
Willum Þór stefnir á þing
Willum Þór Þórsson.
Willum Þór Þórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Willum Þór Þórsson, knattspyrnuþjálfari, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í suðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninga nú í vor.

Willum Þór er einn reyndasti þjálfari landsins en hann þjálfaði síðast Leikni R. í sumar. Hann hefur nú sett stefnuna á að ná 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins og í kjölfarið að komast á þing næsta vor.

,,Ég fann ákveðna þörf fyrir því að stíga á þennan vettvang. Þetta er mikil áskorun og það eru mörg krefjandi verkefni. Það er lag og mér finnst vera þannig tímar í dag að það sé möguleiki á að láta að sér kveða," sagði Willum við Fótbolta.net í dag.

,,Ég hef lært það í íþróttunum að ég er hluti af liðsheild. Það er kraftur og byr með Framsóknarmönnum í dag og áður en maður fer í sterkar yfirlýsingar þá er þessi barátta fyrsta skrefið. Í kjölfarið fáum við sterkara lið. Þannig virkar þetta í íþróttunum og þannig virkar þetta hjá okkur."

Willum hefur fylgst vel með stjórnmálum undanfarin ár og þá sérstaklega hjá Framsóknarflokknum.

,,Ég hef alltaf fylgst vel með og stutt Framsóknarflokkinn í Kópavogi og ég hef alltaf fundið samhljóm með mínum skoðunum í Framsóknarflokknum."
Athugasemdir
banner