Luis Suarez átti frábæran leik þegar Liverpool og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli. Skoraði hann jöfnunarmark heimamanna.
„Suarez er frábær leikmaður. Hann bjó til allskonar vandræði fyrir okkur. Ef okkur hefði tekist að stöðva hann þá hefðum við unnið leikinn," segir Alan Pardew, stjóri Newcastle.
„Suarez er frábær leikmaður. Hann bjó til allskonar vandræði fyrir okkur. Ef okkur hefði tekist að stöðva hann þá hefðum við unnið leikinn," segir Alan Pardew, stjóri Newcastle.
„Þetta var erfiður dagur fyrir okkur. Við litum vel út í stöðunni 1-0 en svo kom einbeitingarleysi og við fengum mark í andlitið. Ofan á það misstum við þrjá menn í meiðsli og fyrirliðinn okkar er líklega á leið í þriggja leikja bann."
Fabricio Coloccini, fyrirliði Newcastle, fékk rautt spjald.
„Það virtist ekki vera mikill ásetningur en við þurfum að sætta okkur við þetta."
Athugasemdir