Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 19. mars 2004 00:00
Elvar Geir Magnússon
Ian Jeffs aftur með ÍBV í sumar
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn ÍBV fengu þær gleðifréttir í morgun að Ian Jeffs, sem í vetur var á mála hjá Crewe Alexandra, mun verða leikmaður með ÍBV í sumar. Ian lék sem kunnugt er með félaginu í fyrra við góðan orðstýr ásamt félaga sínum Tom Betts. Hann er 22 ára og skoraði þrjú mörk í þeim 16 leikjum sem hann spilaði með liðinu í Landsbankadeildinni. ÍBV er í samstarfi við Crewe og í nóvember síðastliðnum þá fóru stjórnarmenn úr ÍBV til Englands til að ræða framhald á samstarfinu og þessu hefur það skilað.

Upplýsingar af ibv.is/fotbolti.
Athugasemdir
banner
banner
banner