Græni Herinn frumsýnir heimildarmyndina Leiðin að titlinum kl.21:00 á föstudag í Samkomuhúsinu á Húsavík. Myndin fjallar um sigurför Völsungsliðsins sumarið 2012 en félagið fagnar 86 ára afmæli sínu á frumsýningardaginn.
Önnur sýning verður á sunnudaginn klukkan 20:00 en einnig verður mögulegt að sjá myndina í Bíó Paradís, Reykjavík, laugardaginn 20.apríl kl.20:00.
Rafnar Orri Gunnarsson, hjá Græna Hernum, var í viðtali um myndina í útvarpsþættinum Fótbolta.net á laugardaginnn.
,,Við rennum yfir ferðalagið frá fyrstu umferð fram í 22. umferð þegar að strákarnir lyfta bikarnum," sagði Rafnar í þættinum.
,,Við ferðuðumst með liðinu í alla leiki og eigum hriklega mikið efni. Þegar við fórum að klára tvo leiki í röð á 94. mínútu og það var meistarabragur yfir þessu þá fór maður að hugsa að við gætum gert eitthvað með þetta."
Miðapantanir eru mögulegar í gegnum [email protected] og í síma 8668902 en hér að neðan má sjá brot úr myndinni.




