Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Harkið - Jón Daði mættur aftur!
Besta spjallið - Máni Péturs fer yfir stöðuna í Garðabæ
Útvarpsþátturinn - Arnór Ingvi og HM að hefjast
Harkið - Hiti í Vogunum
Uppbótartíminn - Allt var það eftir bókinni
Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns
Útvarpsþátturinn - Slot rekinn og þrjú lið í Bestu í lagi
Hugarburðarbolti GW Uppgjörið með Villa Neto og Tönju Sif
Harkið X Ásgeir Frank
Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið
Uppbótartíminn - Algjör sigur fyrir þessa deild
Hugarburðarbolti GW 38 Sigurvegarinn krýndur!
Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi
Enski boltinn - Eftir 22 ár af sársauka
Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið
Hugarburðarbolti GW 37 Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið
Harkið - Króksarar með fullt hús
Innkastið - Vafasöm vegferð
Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri
Fótbolta nördinn: Úrslit - Fótbolti.net vs Draumaliðið
   mán 08. apríl 2013 14:00
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Ásgeir Börkur: Voru að leita að hlaupadýri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Heimasíða Sarpsborg
Miðjumaðurinn vinnusami Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur verið lánaður frá Fylki til Sarpsborg í Noregi. Hann verður þar til 15. júlí með möguleika á kaupum eftir það.

„Það var frekar stuttu fyrirvari á þessu en þetta gerðist fyrir nokkrum dögum bara. Það var ekki mikill tími til að hugsa en ég ákvað að stökkva á þetta tækifæri. Ég er ekkert að verða neitt yngri," sagði Ásgeir Börkur í viðtali við útvarpsþátt Fótbolta.net á X-inu á laugardag.

„Mér fannst þetta bara tilvalið. Fylkismenn sýndu fagmennsku í þessu og studdu mig alla leið. Ég er mjög þakklátur fyrir."

„Þeir voru að leita að hlaupadýri og það gekk erfiðlega hjá þeim að finna þannig leikmenn. Þá höfðu þeir samband við mína umboðsmenn, mér var treyst fyrir þessu og ég mun endurgjalda það traust. Það er alveg ljóst."

„Sama hvernig þetta fer þá verður þetta frábært ævintýri og góð reynsla. Það er ekki slæmt að í liðinu séu þrír Íslendingar fyrir og allt algjörir fagmenn," sagði Ásgeir Börkur en fyrir hjá Sarpsborg eru Haraldur Björnsson, Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson.

Ásgeir Börkur er mikill rokkari, mun þessi för hans til Sarpsborg ekki setja neitt strik í reikninginn varðandi tónlistarferilinn?

„Já og nei. Ég og hljómsveitin sem ég er í núna vorum frekar slakir í tíðinni. Við vorum að spila reglulega en vorum ekki að æfa mikið. Þetta setur smá strik í reikninginn en þeir voru bara sáttir við að ég væri að fara út."

„Það er allt mjög fínt hérna. Völlurinn er flottur og gott fólk sem er í kringum þetta. Mér var vel tekið og allt það."

Sarpsborg er taplaust eftir fyrstu þrjár umferðirnar, hefur unnið einn leik og gert tvö jafntefli. Fyrsti leikur Ásgeirs Barkar verður líklega gegn Álasundi næsta sunnudag.

„Já ég hugsa það. Vonandi fær maður að sýna sig og sanna þar."

Spái Fylki alltaf titlinum
Ásgeir Börkur er með stórt Fylkishjarta. Talsverðar breytingar hafa orðið á Árbæjarliðinu. Hvernig lýst honum á stöðu mála í Árbænum?

„Ég er alltaf bjartsýnn á gengi Fylkis, ég spái okkur meistaratitlinum fyrir hvert einasta tímabil. Það eru komin rosalega mikil gæði í Fylkisliðið í dag. Ef heppnin spilar inn í og allir strákarnir hafa trú á verkefninu þá sé ég fram á það að þetta verði gott sumar í Lautinni," sagði Ásgeir Börkur.

„Nýju leikmennirnir eru að koma vel inn í þetta og liðið hefur styrkst allstaðar á vellinum. Mér finnst það bara jákvætt. Það er líka gott fyrir þá sem eru fyrir og heldur þeim á tánum og gerir að betri leikmönnum."

„Það er engin spurning að ég mun fylgjast vel með frá Noregi og fylgjast með öllum beinum textalýsingum á Fótbolta.net. Það er klárt mál."

Algjör blaðra
Það var ekki hægt að sleppa því að spyrja Ásgeir Börk út í hinn umdeilda bolta frá Adidas sem var kynntur sem opinber keppnisbolti Pepsi-deildarinnar. Hann hefur prófað þennan bolta á æfingum.

„Þetta er bara brandari. Vonandi girða þeir sig sem eru að stjórna þessu og koma með almennilega bolta. Þetta er bara algjör blaðra," sagði Ásgeir Börkur en hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner