Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
David Moyes: Viljum bæta stigametið
David Moyes segir að sigur gegn Chelsea á sunnudaginn sé mikilvægur svo liðið bæti stigamet félagsins á síðasta leikdegi Moyes með félaginu áður en hann gerist arftaki Sir Alex Ferguson hjá Manchester United.

Með sigri gegn Chelsea á Stamford Bridge kemst Everton í 66 stig og bætir þannig stigametið sitt sem er 65 stig.

,,Við kláruðum West Ham leikinn mjög vel í síðustu viku og það kom okkur í sæti þar sem við komumst hvorki upp né niður," sagði Moyes.

,,Það er frábært, en við viljum ná stigameti félagsins, það er okkar lokamarkmið. Þetta er góður leikur til að enda á.

,,Við erum svekktastir með að ná ekki markmiði okkar um að ná evrópusæti. Stigafjöldinn sem við erum með núna hefði nægt til að tryggja okkur meistaradeildarsæti fyrir átta árum.

,,En við komumst ekki einu sinni í Evrópudeildina og það er mjög svekkjandi."

Slapp
banner