Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 19. maí 2013 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Bardsley dó áfengisdauða í spilavíti - Tekinn úr hóp
Phil Bardsley, leikmaður Sunderland á Englandi, var ekki með liðinu gegn Tottenham í síðasta leik ensku úrvalsdeildarinnar í dag af augljósum ástæðum, en myndirnar hér að neðan lýsa því nánar.

Bardsley, sem er 27 ára gamall varnarmaður, ákvað að fá sér aðeins í spilavíti á dögunum sem varð til þess að hann dó áfengisdauða.

Paolo Di Canio, knattspyrnustjóri Sunderland, ákvað því að draga hann úr hópnum fyrir leikinn gegn Tottenham í dag, en myndir af áfengisdauða hans má sjá hér að neðan.

,,Þessir leikmenn geta ekki verið áfram hjá mér sem haga sér svona. Það er mjög auðvelt að ýta þessum leikmönnum frá," sagði Di Canio.

,,Við erum með strangar reglur, þetta var viðbjóðslegt. Svona menn geta ekki æft hjá mér," sagði hann að lokum.

Félagar hans röðuðu seðlum í kringum og ofan á hann í gríni, en ítalska stjóranum er sennilega ekki skemmt við að skoða þessar myndir.
Slapp
banner
banner
banner