Það var nóg um að vera í spænska boltanum í kvöld, en Barcelona vann Real Valladolid með tveimur mörkum gegn einu.
Deportivo La Coruna vann Espanyol með tveimur mörkum gegn engu. Sigurinn var Deportivo mikilvægur, en liðið er í bullandi fallbaráttu og er nú stigi fyrir ofan Real Zaragoza sem er í fallsæti.
Zaragoza tapaði á meðan fyrir Athletic Bilbao á heimavelli. Helder Postiga kom liðinu yfir snemma í fyrri hálfleik áður en Fernando Llorente jafnaði metin þegar um tíu mínútur voru eftir. Ibai Gomez tryggði Bilbao síðan sigurinn í uppbótartíma.
Rayo Vallecano sigraði Levante á útivelli í markaleik, 2-3 og þá vann Barcelona 2-1 sigur á Real Valladolid á Nou Camp. Pedro Rodriguez kom Barcelona yfir eftir frábæran undirbúning frá Xavi áður en Marc Valiente varð fyrir því óláni að skora í eigið net. Þegar nokkrar mínútur voru eftir minnkuðu gestirnir muninn með marki úr vítaspyrnu.
Úrslit og markaskorarar:
Deportivo 2 - 0 Espanyol
1-0 Bruno Gama ('50 )
2-0 Nelson Oliveira ('90 )
Zaragoza 1 - 2 Athletic
1-0 Helder Postiga ('14 )
1-1 Fernando Llorente ('80 )
1-2 Ibai Gomez ('90 )
Levante 2 - 3 Rayo Vallecano
0-1 Piti ('20 )
1-1 Robert Acquafresca ('52 )
1-2 Franco Vazquez ('56 )
1-3 Piti ('72 , víti)
2-3 Vicente Iborra ('86 )
Barcelona 2 - 1 Valladolid
1-0 Pedro Rodriguez ('21 )
2-0 Marc Valiente ('42 , sjálfsmark)
2-1 Victor Perez ('89 , víti)





