Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 19. maí 2013 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Goal.com valdi Alfreð í lið ársins í hollensku úrvalsdeildinni
Vefmiðillinn Goal.com hefur valið úrvalslið hollensku úrvalsdeildarinnar fyrir þetta tímabil, en Ísland á einn fulltrúa þar.

Alfreð Finnbogason, framherji Heerenveen er í úrvalsliði ársins að mati Goal.com, en Alfreð skoraði 24 mörk í 31 leik fyrir félagið og var þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar, aðeins Wilfried Bony og Graziano Pelle skoruðu fleiri mörk en hann.

Bas Dost var markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar á síðustu leiktíð, en hann yfirgaf félagið. Alfreð var því keyptur til þess að fylla stórt skarð sem Dost skildi eftir sig, en íslenska framherjanum tókst það.

Hann bætti þá met Péturs Péturssonar, sem lék með Feyenoord í Hollandi, en Alfreð hefur skorað flest mörk íslenskra leikmanna á einu tímabili. Hér að neðan má sjá lið ársins að mati Goal.com

Lið ársins:

Markvörður: Kenneth Vermeer (Ajax)

Vörn: Daryl Janmaat (Feyenoord), Virgil van Dijk (Groningen), Mike van der Hoorn (Utrecht), Daley Blind (Ajax)

Miðja: Christian Eriksen (Ajax), Marco van Ginkel (Vitesse), Kevin Strootman (PSV)

Sókn: Alfreð Finnbogason (Heerenveen), Graziano Pelle (Feyenoord), Wilfried Bony (Vitesse)
Slapp
banner
banner