Michael Carrick, leikmaður Manchester United á Englandi, segir að liðið sé tilbúið í nýjar áskoranir fyrir næstu leiktíð.
Manchester United gerði 5-5 jafntefli við WBA í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar, en liðið varð eins og flestum er kunnugt Englandsmeistari á dögunum.
Sir Alex Ferguson ákvað þá að kalla þetta gott eftir 27 ár sem knattspyrnustjóri félagsins, en Carrick segir að liðið sé tilbúið í nýjar áskoranir.
,,Við höfum þakkað stjóranum fyrir allt sem hann hefur gert og hann hefur þakkað okkur fyrir okkar störf. Við erum tilbúir að halda áfram og takast á við nýjar áskoranir," sagði Carrick.
,,Það er mikil tilhlökkun. Stjórinn vildi vinna síðasta leikinn, en markmiði tímabilsins var náð. Ég er viss um að hann geti hætt sáttur," sagði hann að lokum.




