Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 18:00 að íslenskum tíma í kvöld.
Miklar vangaveltur hafa verið í kringum framtíð Jose Mourinho þjálfara Real Madrid og talið er að Perez muni ræða málefni hans í kvöld.
Miklar vangaveltur hafa verið í kringum framtíð Jose Mourinho þjálfara Real Madrid og talið er að Perez muni ræða málefni hans í kvöld.
Guillem Balague, sérfræðingur Sky í spænska boltanum, segir að Perez muni tilkynna að Mourinho fari frá Real Madrid í sumar.
Mourinho hefur verið mjög sterklega orðaður við endurkomu til Chelsea í sumar.
Carlo Ancelotti, þjálfari PSG, hefur aftur á móti verið orðaður við þjálfarstöðuna hjá Real Madrid en hann hefur óskað eftir því að fara til spænska félagsins.


