Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 20. maí 2013 17:00
Elvar Geir Magnússon
Moyes talaði við leikmenn og starfslið Man Utd í dag
David Moyes fékk leyfi frá Everton til að heimsækja herbúðir Manchester United í dag en hann er að fara að taka við sem knattspyrnustjóri United.

Moyes ræddi við leikmannahópinn og þjálfarateymi liðsins. Þá fundaði hann með Sir Alex Ferguson og stjórnarmanninum David Gill.

Þann 1. júlí tekur Moyes formlega við starfinu. Jimmy Lumsden, sem er þjálfari aðalliðs Everton, mun líklega fylgja honum til United.

United mun fara í æfingaferð til Tælands, Ástralíu, Japan og Hong Kong í júlí.

Fyrsti mótsleikur Manchester United undir stjórn Moyes er leikurinn um Samfélagsskjöldinn þar sem United leikur við bikarmeistara Wigan á Wembley 11. ágúst.
Slapp
banner
banner
banner