Heimild: BBC
Wayne Rooney varð í nótt faðir í annað sinn þegar eiginkona hans Coleen fæddi son í heiminn.
Sonurinn fæddist klukkan 02:11 að breskum tíma en greint var frá þessu á Twitter síðu Coleen.
Sonurinn fæddist klukkan 02:11 að breskum tíma en greint var frá þessu á Twitter síðu Coleen.
Drengurinn hefur fengið nafnið Klay Anthony Rooney.
Rooney hjónin áttu áður Kai sem fæddist í nóvember árið 2009.
Wayne Rooney var ekki með Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fyrradag þar sem hann vildi vera heima hjá Coleen.



