Heimild: BBC
Hér er helsta slúður dagsins úr enska boltanum.
David Moyes ætlar að halda Wayne Rooney hjá Manchester United. (The Guardian)
Tottenham ætlar að hreinsa til í herbúðum sínum í sumar og byggja nýtt lið upp í kringum Gareth Bale. Emmanuel Adebayor og Clint Dempsey eru væntanlega á förum en Tottenham vonast til að fá Christian Benteke og David Villa í staðinn. (Daily Mirror)
Framtíð Benteke gæti komið í ljós á næstu dögum en Belginn hefur átt í viðræðum við Aston Villa undanfarnar vikur. (Metro)
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, mun fá að eyða 70 millónum punda í leikmenn í sumar þar sem Arsenal ætlar að hreinsa til í sínum herbúðum og losa sig við menn sem eru með samtals 350 þúsund pund í vikulaun. (Daily Mirror)
Liverpool er að krækja í Kolo Toure varnarmann Manchester City. (The Telegraph)
Tiago Ilori varnarmaður Sporting Lisabon og Kyriako Papadopoulos varnarmaður Schalke eru einnig á óskalista Liverpool. (The Times)
Richard Dunne er á förum frá Aston Villa og þá gætu Shay Given og Stephen Ireland einnig farið. (The Telegraph)
Andy Carroll gæti hafnað West Ham til að komast í lið sem spilar í Evrópukeppni. West Ham hefur einnig mistekist að fá Alvaro Negerdo frá Sevilla. (Daily Star)
Juventus ætlar að berjast við Manchester United um Andrea Ranocchia varnarmann Inter. (Talksport)
Fulham hefur áhuga á Yohan Mollo kantmanni Nancy en hann kostar fjórar milljónir punda. (Daily Mail)
Wigan vill fá 15 milljónir punda fyrir miðjumanninn James McCarthy en Tottenham sér hann sem arftaka Scott Parker. (Daily Mirror)
Rafael Benítez fundaði með forráðamönnum Napoli í London í gær. (Tuttosport)
Roberto Martinez, stjóri Wigan, mun ákveða framtíð sína í vikunni. (Sky Sports)
Manchester City mun frumsýna nýja búninga sína í æfingaferð í Bandaríkjunum í sumar en félagið hefur gert sex ára samning við Nike sem gefur 72 milljónir punda. (Daily Mirror)
Einn stuðningsmaður ákvað að kaupa 700 eintök af leikskránni fyrir leik WBA og Manchester United þar sem í henni voru 40 blaðsíður tileinkaðar Sir Alex Ferguson (606)


