Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 21. maí 2013 10:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Gylfi: Einn leikmaður myndi ekki fylla skarð Bale
Gylfi Þór Sigurðsson segir að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir Tottenham að halda Gareth Bale í herbúðum félagsins í sumar.

Miklar vangaveltur hafa verið í kringum framtíð Bale og þær hafa ekki minnkað eftir að Tottenham endaði í fimmta sæti í ensku úrvalsdeildinni.

,,Það er mikilvægt að halda góðum leikmönnum og hann er stórkostlegur leikmaður," sagði Gylfi.

,,Það væri frábært ef hann verður áfram. Ef hann fer þá mun félagið fá mikinn pening fyrir hann. Vonandi kæmu þá nokkrir leikmenn því að ég held að einn leikmaður geti ekki fyllt hans skarð."

,,Það sýnir hversu góður hann var á tímabilinu. Hann var mjög mikilvægur fyrir okkur. Hann hefur verið hér lengi, hann er mjög ánægður og nýtur þess að spila fótbolta svo vonandi verður hann áfram."

Slapp
banner
banner