Heimild: BBC
BBC greinir frá því í dag að Liverpool ætli að krækja í Kolo Toure þegar samningur hans hjá Manchester City rennur út í næsta mánuði.
Toure er sem stendur í ferð með Manchester City í Bandaríkjunum en samkvæmt frétt BBC mun hann setjast við samningaborðið hjá Liverpool þegar hann kemur aftur til Englands.
Jamie Carragher er að leggja skóna á hilluna og Liverpool ætlar að fá tvo miðverði í sínar raðir í sumar en auk Toure er Kyriakos Papadopoulos leikmaður Schalke á óskalistanum.

Toure er 32 ára gamall en hann kom til Manchester City frá Arsenal á 14 milljónir punda árið 2009.
Toure lék einungis 18 leiki á nýlinðu tímabili en hann hefur ekki leikið mikið með City síðan hann var dæmdur í keppnisbann tímabilið 2010/2011 þegar ólöglegt efni fannst í blóði hans.
Ef Toure gengur í raðir Liverpool verður hann fyrsti leikmaðurinn eldri en 24 ára sem Brendan Rodgers fær til félagsins síðan hann tók við.