Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 21. maí 2013 16:30
Elvar Geir Magnússon
Seedorf næsti þjálfari AC Milan?
Clarence Seedorf fyrrum miðjumaður AC Milan er nú orðaður við þjálfarastöðu félagsins. Reiknað er með því að Massimiliano Allegri verði leystur undan samningi í þessari viku og muni í kjölfarið taka við stjórnartaumunum hjá Roma.

Sport Mediaset segir að Silvio Berlusconi hyggist gefa hinum 37 ára Seedorf tækifæri í þjálfarastólnum en hann hætti sem leikmaður Milan fyrir einu ári og gekk í raðir Botafogo í Brasilíu en hann spilaði fyrir Milan í tíu ár.

Tveir aðrir fyrrum leikmenn liðsins hafa einnig verið orðaðir við þjálfarastöðuna; Filippo Inzaghi og Marco Van Basten.

Seedorf gaf það nýlega út að hann stefnir á að fara í þjálfun í framtíðinni.

Allegri hefur verið þjálfari AC Milan síðustu þrjú ár. Hann stýrði liðinu til meistaratitils á fyrsta ári, svo í annað sætið og í ár hafnaði það í þriðja sæti.
Slapp
banner
banner