,,Ég er gríðarlega sáttur, við spiluðum vel í fyrri hálfleik fannst mér og vorum sterkir varnarlega," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 0 - 1 sigur á Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld.
,,Við komumst sanngjarnt yfir og fengum færi til að koma okkur í betri stöðu. 1-0 staða er alltaf hættuleg og Blikarnir komust inn í leikinn í seinni hálfleik. Samt sem áður fengum við færi til að skora annað mark, Atli Viðar setti hann í stöngina. En ég er fyrst og fremst ánægður með þau þrjú stig sem við fengum á móti gríðarlega sterku Blikaliði, sérstaklega eru þeir góðir sóknarlega."
,,Við lögðum upp með að verjast vel og beita skyndisóknum. Mér fannst það heppnast vel í kvöld."
,,Freysi meiddist á æfingu í gær og við tókum Brynjar af miðjunni og settum hann í hafsentinn, hann hefur spilað það og stóð sig mjög vel. Jón Ragnar kom inn fyrir Guðjón Árna sem var í leikbanni og Jón Ragnar stóð sig að mínu mati mjög vel og Dominic kom inn á miðjuna og stóð sig vel. Þetta heppnaðist."
Róbert Örn Óskarsson markvörður FH var maður leiksins og varði vítaspyrnu seint í leiknum. Heimir var ánægður með hann.
,,Robbi stóð sig vel í leiknum og varð þess valdandi að við fengum þrjú stig í staðin fyrir eitt. Á móti kemur að það eru bara fjórar umferðir búnar og hann er búinn að standa sig vel. Það eru 18 leikir eftir í deildinni plús eitt og annað. Við þurfum að halda fókus og verða með báðar fætur á jörðinni."





















