Lionel Messi, leikmaður Barcelona á Spáni, segir að það yrði frábær viðbót að fá brasilíska undrið Neymar frá Santos.
Neymar, sem er 20 ára gamall, hefur verið sterklega orðaður við Barcelona síðustu mánuði, en það er talinn hans líklegasti áfangastaður í sumar.
Leikmaðurinn sjálfur heldur því fram að hann fari ekki frá Santos fyrr en eftir HM sem fer fram í heimalandinu á næsta ári, en fjölmiðlar halda því fram að framherjinn ungi sé við það að skrifa undir samning við Barcelona.
,,Ég veit ekki hvort hann kemur hingað eða ekki, en það er rétt, hann myndi koma með allt aðra vídd enn í liðið," sagði Messi.
,,Að sjálfsögðu yrði hann frábær viðbót," sagði hann að lokum.




