Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. maí 2013 11:00
Magnús Már Einarsson
Tekur Jupp Heynckes við Real Madrid?
Real Madrid ætlar að reyna að fá Jupp Heynckes sem næsta þjálfara ef félagið nær ekki að krækja í Carlo Ancelotti frá PSG.

PSG vill fá 7,5 milljónir evra fyrir Ancelotti og ef sá verðmiði lækkar ekki þá mun Real Madrid leita til Heynckes sem er á förum frá FC Bayern í sumar.

Real Madrid stefnir þá á að bjóða hinum 68 ára gamla Heynckes tveggja ára samning.

Heynckes þekkir til hjá Real Madrid en hann stýrði liðinu til sigurs í Meistaradeildinni tímabilið 1997/1998.
Slapp
banner
banner